Bloggfærslur mánaðarins, mars 2012

Fé án hirðis !

Ætli þessi orð marki ekki Pétur Blöndal stjórnmálamann þegar hann gaf skotleyfi á einkavæðingu bankanna og sparisjóðanna.

Allir vita hvernig þessir bankar voru tæmdir.

Ekki nóg með það heldur var seðlabankinn tæmdur líka.

Hver var seðlabankastjóri þá ?

Nei sjálfstæðisflokkurinn veit allt manna best :-)

Hvaða stofnun hr. Pétur er svo ílla sett að vera með fé án hirðis ?

Landsvirkjun ?

Kanski að Sjálfstæðisflokkurinn gæti einkavinavætt hana næst þegar þið komist til valda :-)

Kveðja

Jóhannes


mbl.is „Er hann með of lág laun?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já akkúrat

Í fréttum í gær var átakanleg lýsing á hvernig þessi króna hefur farið ílla með fólkið í landinu.

Þeir sem eru með sitt hjá umboðsmanni skuldara og þurfa að fara gera upp sín mál, eru að missa allt sem þau höfðu vegna hrunsins !

Konan hafði 15.000 kr. til að gera upp mánuðinn eftir reikninga og var með tvö börn.

Meira segja Pétur Blöndal getur ekki reddað þessum mánuði með sinni talnaspeki. 

Matvælaverð hefur rokið upp, bensínverð og aðrar nauðsynjavörur einnig.

Krónan hefur hríðfallið, er eins og flagg í 12 vindstigum. Gjaldeyrishöftin ríghalda í krónuna til að hún falli ekki eins og steinn.

Hér er Verðbólga sem er hæst í Evrópu.

Verðtrygging og okurvextir eru hér daglegt brauð.

Bankar neita að fara eftir lögum sem Hæstiréttur hefur dæmt !

Veit ekki í hvaða fílabeinsturni þessi maður lifir í. En það er allavega ekki í sama landi og þeir sem eru að missa allt sitt á þessu ári og komandi árum vegna verðtryggingar og krónunar !

Hafðu það gott Már og kanski hugsaðu til hennar og kanski prófaðu að upplifa það að hafa 15.000 á milli handanna.

Örugglega ekki þægileg tilfinning Már.

Kv.

Jóhannes 


mbl.is Már: Krónan hjálpaði Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríðsglæpamaðurinn Bashar al-Assad.

Sniðugur hann Bashar al-Assad eða hittþó

Hann gerir þá fastlega ráð fyrir því að vera búinn að stráfella alla stjórnarandstæðinga fyrir þann tíma.

Þessa skúrka Assad og bræður ásamt herforingjum á alla að leiða fyrir dómstóla og dæma þá fyrir stríðsglæpi.

Myndir af konum og börnum myrt í Homs og fl. borgum er ömurleg birtingarmynd harðstjóra sem vílar ekkert fyrir sér að halda völdum. En mun falla eins og allir harðstjórar hafa gert bara spurning um tíma.

Menn sem eru með bundnar hendur aftur fyrir bak, drepnir sumir skornir á háls og með stungusár, er algjör viðbjóður. 

Þó svo erlendum fréttamönnum sé bannað að að fjalla um þessa atburði í Sýrlandi þá hafa hetjur komist þangað til að fjalla um morðin fyrir okkur sem sitjum heima og erum í órafjarlægð frá þessum atburðum.

þó nokkrir fréttamenn hafa þegar látist og aðrir særst við að senda okkur upplýsingar um þetta stríð.

Þetta eru hetjur sem ekki er hægt að lofsama nægilega mikið og langar mig að nefna Marie Colvin sérstaklega, sem lést þegar hún var að fjalla um stríðið í Homs ( leiðrétting stríðsglæpina í Homs ).

http://www.bbc.co.uk/news/world-middle-east-17136427 

fjöldamorðin í Homs og borgin lögð í rúst eins og sést hér :

http://www.youtube.com/watch?v=SyQIv5wyYGE

Hvar eru Sameinuðu þjóðinar ?

Þessi stofnun er gjörsamlega vonlaus að stoppa svona stríð og þarf virkilega að taka til hendinni !

Tvö dæmi um hversu vonlaus þessi stofnun er :

Rwanda þar sem 800.000 manns voru vegin af vígamönnum með sveðjur að vopni.

Það tók ekki nema 100 daga að slátra þessu fólki u.þ.b 3 x fólksfjöldi Íslands

Hvar voru Sameinuðu þjóðinar þá ?

Sameinuðu Þjóðinar voru að vísu þarna, en hermenn Sameinuðu Þjóðanna fengu skipanir að gera ekkert til að bjarga þessu fólki heldur koma sér bara burtu og skilja fólkið eftir. Svo beið fólkið bara eftir því að morðingjarnir kæmu og hjuggu það bara í tætlur með sveðjum að vopni.

Belgar sendu að vísu hermenn til að ná í hvíta fólkið og hirtu ekkert um aðra.

http://www.youtube.com/watch?v=l9FEpZRRFlM

http://news.bbc.co.uk/2/hi/1288230.stm

Svo er það Srebrenica morðin !

Þessi borg var undir verndarvæng Sameinuðu þjóðanna, hvað gerði svo Hollendingarnir sem vörðu fólkið í Srebrenica ? þeir löbbuðu í burtu frá þessu fólki og létu Serba strádrepa alla menn, hvort það séu ungir eða fullorðnir karlmenn.

Stundum spyr maður sig að því hvernig mannfólkið sé í raun og veru og hvursu auðvelt sé að breyta okkur í algjört villidýr.

Fjallað er um Srebrenica hér :

http://www.youtube.com/watch?v=Id4wtBJHMdU

http://www.youtube.com/watch?v=Hj25iI7Tdc0&feature=related

Sameinuðu Þjóðirnar hafa ekkert lært, munu aldrei læra þegar hagsmunaárekstrar stórveldanna ráða þar för.

Maður spyr sig, eru það ekki líka stríðsglæpir að gera ekki neitt ? 

Ömurlegt en satt !

 KV.

Jóhannes

  


mbl.is Assad boðar þingkosningar í maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband